12.5.2020 | 19:04
Hvað er full vinna ?
Það vantar algjörlega útlistun á hvað telst full vinna. hvenær telst vinna hefjast, heima í Reykjavík eða þegar þið mætið um borð á ykkar vinnustað í Keflavík ? Hver eru heildarlaun fyrir fullt starf, fríðindi td. skattsviknir dagpeningar ofl. ? Ekki gleyma tollinum ! Segið alla söguna, ekki bara það sem hentar.
![]() |
Sendu starfsmönnum stórt FOKKJÚ merki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2020 | 14:56
Strætóbílstjórar ?
Hver eru meðallaun strætóbílstjóra ? Hve miklar eru dagpeningagreiðslur til þeirra ?
![]() |
Meðallaun flugstjóra 2,1 milljón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2020 | 09:37
Frá A til B.
British Airways og Easyjet hafa komið fólki milli Íslands og Bretlands td. oft á verðum sem voru rétt um helmingur af því Icelandair bauð, aðra leið á ca. 14 þús í stað 28 þús. Sjálfur hef ég ekki fundið fyrir því að þjónustan sé eitthvað síðri hjá þessum félögum en Icelandair. Hvað á ég þá að bera saman til að vera tilbúinn að borga tvöfalt ? En hvernig sem félagið er skilgreint þá réttlætir það engan veginn að flugfólkið hjá félaginu séu á kjörum langt umfram það sem gerist hjá samkeppnisaðilunum og það er engin glóra að flugfólkið ráðskist með rekstur félagsins. Það að skilgreina Icelandair ekki sem lággjaldafélag, réttlætir það líka skattaundanskot flugfólksins gegnum dagpeningagreiðslur sem eru í raun hluti launa ? Strætóbílstjórar og gengilbeinur háloftanna verða bara að fara að átta sig.
![]() |
Rangt að bera Icelandair saman við lággjaldafélög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2020 | 22:57
Vantar skilninginn.
Það vantar greinilega skilning fyrir því að til að standa undir lúxuskjörum flugstéttanna þá þarf viðskiptavinurinn að borga meira fyrir flugmiðana en hjá öðrum. Það er bara ekki að fara að gerast. Að mati ASÍ er því betra að viðhalda óraunhæfum kröfum, setja félagið í þrot og tapa störfunum frekar en að horfast í augu við raunveruleikann og sætta sig við þau kjör sem bjóðast hjá samkeppnisaðilunum. En þetta er vandinn, það má ekki segja hlutina hreint út.
![]() |
Segir bréfaskrif Boga einstaklega ósvífin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2020 | 16:33
Sælt er sameiginlegt skipbrot.
Viðhorfið virðist vera að sælli sé sjálfseyðing en að gefa eftir óraunhæfa skilmála til að bjarga félaginu og þar með störfunum. Skrýtið hvað fólk er svo tilbúið til að vinna fyrir lakari kjör í útlöndum þegar búið er að eyðileggja allt heima. Ég óska þessu fólki bara velfarnaðar í störfum í framtíðinni hjá Rayanair og álíka félögum. Það verður offramboð af flugvélum og flugfólki þegar ferðamennskan fer aftur af stað. Og allir reyna að koma sínum flota í vinnu, hvar sem er í heiminum.
![]() |
Icelandair krefst launa- og réttindaskerðingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2020 | 14:32
Víst er það grafalvarlegt.
Það er grafalvarlegt ef ekki næst að koma vitinu fyrir félagsmenn flugstéttanna þannig að þeir láti af frekju og yfirgangi. Stéttafélögin geta ekki fengið að stjórna félaginu og svo þarf að laga kjör flugfólksins að því sem gerist hjá samkeppnisaðilunum erlendis. Ágætt væri að fella skattsviknu dagpeningana inn í hefðbundin laun í leiðinni og vera þá á pari við það sem gerist hjá öðrum launamönnum í landinu. Þetta fólk virðist því miður ekki vera að ná áttum. Sjálfseyðingarhvötin getur verið býsna sterk hjá fólki. Ég hélt nú reyndar að fólk þyrfti að setja eitthvað í nefið á sér til að sýna svona dómgreindarleysi, en einhverjir virðast bara vera svona natural.
![]() |
Þetta er grafalvarlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2020 | 12:24
Eru þið að fatta það ?
Flugstéttirnar ættu að skoða söguna vel, það gæti bjargað þeim frá sjálfseyðingu. Kaupskipaútgerð á Íslandi lagðist af með öllu vegna óbilgirnis og þvergirðingsháttar stéttarfélaga farmanna fyrir mörgum árum. Vélstjórafélagið sýndi þó mest allra félaga skilning á þeirri þróun sem var að eiga sér stað og vildi aðlagast til að bjarga þeim störfum sem bjarga mátti. Félög skipstjórnarmanna, bæði Stýrimannafélagið og Skipstjórafélagið öðlaðist smám saman skilning á stöðunni og tók sér afstöðu vélstjóranna til fyrirmyndar. Eftir stóð þá stéttarfélag undirmanna á farskipum sem á þessum tíma var Sjómannafélag Reykjavíkur og þvergirðingsháttur og heimska þeirra sem þar réðu ríkjum varð til þess að kaupkipafloti Íslands sem taldi þegar mest var eitthvað nálægt sjötíu skipum flýði land. Eða öllu heldur, erlendir samkeppnisaðilar yfirtóku viðskiptin og langstærstur hluti starfana hér heima glataðist. Flugstéttirnar hjá Icelandair telja sig yfir allt og alla hafna, stéttarfélög þeirra eigi að vera á launakjörum langt umfram það sem gerist hjá samkeppnisaðilum erlendis sem boðið hafa upp á flug til og frá Íslandi Þessar stéttir telja sig jafnframt eiga rétt á að ráðskast með hvernig félaginu er stjórnað, finnst td. eðlilegt að þau séu spurð álits ef leigja á vél inn í reksturinn eða semja við önnur félög um að fljúga fyrir félagið. Þessar sömu flugstéttir hafa svo þar að auki í áratugi búið við friðhelgi fyrir skattsvikum vegna mikils hluta launa sinna. Stór partur launa flugfólksins er greiddur sem ferðadagpeningar sem ekki eru notaðir til greiðslu ferðakostnaðar en þar fyrir utan er venjulegur vinnustaður þessarra stétta flugförin sjálf. Með vitund og vilja stjórnvalda eru þessar greiðslur sviknar undan tekjuskatti. Þeir sem komist hafa upp með að fara offari í frekju og yfirgangi eiga til að gleyma sér í sjálfsánægju sinni yfir að vera búinn að ná hreðjataki á þeim aðila sem hann hefur náð að kúga með þessum hætti um langan tíma. Og slíkt endar oftar en ekki með því að þeir koma sér sjálfir, algerlega óstuddir út í horn þar sem þeir verða auðveld bráð fyrir þá sem sæifellt leita sér tækifæra til að komast af. Það er algjörlega á hreinu að fjármagnseigendur sem annt er um aurana sína setja ekki krónu í óbreytt fyrirkomulag hjá félaginu og það er ekki verjandi að stjórnendur lífeyrissjóðanna hendi meiri peningum almennings í þessa botnlausu holu bara til að dekra við þá púðurrassa sem starfa um borð í vélunum. Það er líka óverjandi að stjórnvöld hendi peningum skattgreiðendi í svona dekurverkefni. Ef flugfólkið vill ekki láta af óstjórnlegri frekju þá verður bara að láta félagið í friði og leyfa því að fara á hausinn. Við komumst af án eigin kaupskipa og munum spjara okkur ágætlega þó eins fari fyrir millilandafluginu. Þar sem viðskiptatækifæri eru til staðar koma ávallt inn nýjir aðilar, en bara á réttum forsendum.
![]() |
Samningar liggi fyrir 22. maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2020 | 21:59
Sumir greiða ekkert.
Þeir sem safnað hafa í sarpinn geta þá brotið lögin að vild án þess að borga nokkuð. Þetta er eins gáfulegt og búast mátti við frá atvinnuöryrkja.
![]() |
Sanngjarnt að tekjuhærri greiði hærri sektir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2020 | 13:18
Siðleysi ?
Siðleysið felst fyrst og fremst í því að moka skattfé í vonlaus fyrirtæki. Hver gefur á garðann þegar ekkert er eftir ?
![]() |
Siðlaust að láta vinna uppsagnarfrest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2020 | 12:30
Hakinn og skóflan.
Sé fólk þyrst í að komast í líkamsrækt er hægur vandi að fá að taka á því í verklegum framkvæmdum annað hvort á hjólbörunum eða með skóflu og haka í hönd. En það er sennilega ekki nógu fínt þar sem slíkt púl er til einhvers gagns. En það er algjörlega frítt.
![]() |
Krefjast þess að fá að opna 18. maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.7.): 0
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 124
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 102
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar