Færsluflokkur: Bloggar

Vit og völd.

Vit og völd fara ekki alltaf saman og í seinni tíð virðist hafa verið erfitt að sameina þetta tvennt. Það er algjörlega forkastanlegt að veginum hafi verið lokað fyrir öllum, hvort sem um er að ræða smápúddur á sköllóttum skóm í flokki næstum við Hopp hjól eða stórum fjórhjóladrifnum bílum vel búnum til vetrarakstur og fjallaferða. Margir þessara bíla eru ekki síður vel búnir en þeir sem björgunarsveitirnar notast við. Það eru litlu vanbúnu púddurnar sem þarf að stoppa við vegtálma svo þær séu ekki eins og hráviði fyrir þeim sem eru búnir til aksturs við svona aðstæður. Hætta þarf þessari endalausu forræðishyggju og gera fólk ábyrgt fyrir sjálfu sér og þeim skaða sem það kann að valda við að reyna að fara sér að voða. Mikið kapp var lagt á að koma ferðamönnum til höfuðborgarinnar frá vellinum væntanlega svo þeir gætu leigt sér bíla og haldið upp á hálendið til að koma sér í voða og láta leita að sér. Skilaboðin eru skýr. það er allt í lagi að fara og týnast í óbyggðum þrátt fyrir viðvaranir, björgunarsveitirnar og Landhelgisgæslan sækja okkur frítt, amk okkur að kostnaðarlausu. Það er fleira á Suðurnesjum en bara flugvöllur.


mbl.is Fara þurfi rækilega í saumana á lokuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hækkar leigan.

Ekki vantar mannvitsbrekkurnar á Alþingi. Nú hækkar leigan, henni er jú stillt við það sem leigutakar geta greitt. Hvers vegna greiðir ríkissjóður þetta ekki beint til leigusala ?


mbl.is Hækkunin nær til 17 þúsund heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigjandi ??????

Leigjandi er tæplaga mjög skýrt í svona umfjöllun. Leigjandi getur hvort sem er verið leigusali eða leigutaki. Alveg óþarfi að hafa einhvern óskýrileika í þessu.


mbl.is Bendir á ákvæði sem margir leigjendur þekki ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áunnir frídagar vinnist um næstu helgi.

Er ekki nær að ef lögskipaður frídagur fellur á virkan dag þá skuli launamaður vinna næasta laugar- eða sunnudag í staðinn ? Hvers vegna eiga vinnuveitendur að bera ábyrgð á því hvernig almanakið leggst ? Þetta bull er orðið svo rótlaust og yfirgengilegt að augljóst er að þeir sem viðra svona fávitagang trúa því að peningarnir vaxi á trjánum eða komi bara með farfuglunum á vorin. Stór hluti þeirra sem eru á vinnumarkaði í dag eru ekki að framleiða nein verðmæti.


mbl.is Vilja að tapaðir frídagar færist á næsta virka dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert þykjustuflugfélag....

sem á engar flugvélar. Snillingar í að narra peninga út úr fjármálasérfræðingum lífeyrissjóðanna sem höndla með annarra manna fé og þurfa ekki að fyllast eftirsjá þegar skellurinn kemur. Best væri fyrir alla að sjoppunni yrði lokað strax. Amk. myndi ég ekki þiggja boðið, ég vil vera nokkuð viss um að verða ekki strandaglópur.


mbl.is Play býður Ásgeiri til Tenerife
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stytta meira

Í mörgum ríkisstofnunum má stytta vinnutímann enn meira, alveg niður í ekki neitt. Þá þarf ekkert að borga laun heldur og kemur skattgreiðendum væntanlega til góða. Almenningur verður lítið var við nokkurn mun þar sem margt af þessu fólki er ekki að gera neitt hvort eð er.


mbl.is Meirihluti stofnana stytti vinnuvikuna strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar kókdósir.

Þær leynast víða kókdósirnar. Það er í góðu lagi að borga fyrir kókið ofan í sjálfan sig en spurning með hvers vegna skattgreiðendur eiga að kaupa kókið ofan í alla ónytjungana og fyrirfrlækingana sem titlaðir eru embættismenn og eitthvað þaðan af flottara. Þingmenn í þeirra hópi.


mbl.is Gjaldið svipað og verð á kókdós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir hafa fengið langmest.

Bjarni er í hópi þeirra sem kallast sjálftökuherinn og hefur skammtað sjálfum sér langmest á síðustu árum og langt umfram alla aðra. Þar er brotalömin stærst.


mbl.is Vinnumarkaðsmódelið á Íslandi brotið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin afskipti ríkisvaldsins.

Hér eiga samningsaðilar að klára sína pligt án þess að ríkið komi að. Ríkisvaldið hefur hvað eftir annað látið draga sig á asnaeyrunum, og víst er að þar eru mörg slík eyru til að toga í. Eftir að samningsaðilar hafa náð saman með fyrirvörum um að ríkið geri hitt og þetta banka báðir aðilar upp á í Stjórnarráðinu og hóta að ekkert verði af samningum nema ríkið komi með einhverja byttlinga. Svo er asnaeyrunum í Stjórnarráðinu kennt um að ekki hafi náðst samningar samþkki þau ekki allt bullið umyrðalaust. Á sama tíma og stytta á vinnuskyldu á að stórhækka laun. Býr þetta fólk í gróðurhúsi þar sem peningaræktun fer fram ?


mbl.is Viðræður í höndum samningsaðila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 360
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 305
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband