Alvarlegt mál.

Á bara að hleypa þessu fólki inn í landið athugasemdalaust ? Nú kemur í ljós hve alvarlega yfirvöld líta þennan faraldur. En sjálfsagt mun dekur stjórnvalda við ferðaþjónustufyrirtækin spila eitthvað inn í ákvarðanir hvað þetta varðar.


mbl.is 23 farþegar væntanlegir með Norrænu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertu nákvæmari í svörum.

Lögmaðurinn veit sjálfsagt betur en hann lætur hér í veðri vaka. Hér getur td. skipt máli hvort arfleifandi situr í óskiptu búi. Þá er rétt að benda á að skattyfirvöld leggja ekki blessun sína yfir gjafir sem þau telja óeðlilega háar að verðmætum nema greiddur sé skattur af slíku. Vandamálið við þetta viðhorf skattyfirvalda að það er algjörlega þeirra geðþóttaákvörðun hvar mörkin eru á verðmætunum, hvort þær eru skattskyldar eða undanþegnar. En skattyfirvöld hafa í gegnum tíðana einbeitt sér í því að vera loðin í öllum sínum athöfnum.


mbl.is Hversu mikið má gefa erfingjum fyrir andlát?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neyðin kennir naktri konu að spinna.

Í fréttinni kemur fram að verkstæðin fá ekki menn í vinnu. Á sama tíma eru 50.000 manns á atvinnuleysisbótum að hluta eða öllu leyti. Þegar allt var á blússandi siglingu í atvinnulífinu fyrir örfáum árum var útilokað að fá fólk til að vinna störf þar sem engrar fagmenntunnar var krafist, jafnvel þó boðin væru laun sem voru meira en 50 - 60% hærri en það sem skylduaðildarsamtök launamanna hafði samið um við SA fyrir alla launagreiðendur hvort sem þeir eru í SA eða ekki. Þá voru samt þúsundir á atvinnuleysisbótum þar sem þeir nenntu hreinlega ekki að vinna. Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að ef fólk menntar sig í einhverju, sérstaklega þeir sem mennta sig í einhverju pappírsskrjáfi þá hætta þeir að geta gert það sem fagmenntun krefst ekki um leið og þeir fá gráðurnar. Og þá leggjast þeir bara á jötuna og láta samborgara sína borga undir sig letilífið. Linkindin og vesaldómurinn í þessu landi er engu líkur. Auðvitað átti að fella niður atvinnuleysisbætur með öllu meðan nóg var atvinnan fyrir örfáum árum. Þá hefðu letingjarnir drasttast til að afla sér matar, eða dáið drottni sínum. Þá hefðu líka þeir Austantjaldar sem ekki nenntu að vinna farið til síns heima.Nú er búið að innræta þessari þjóð sem áður stóð af sér allar hremmingar sjálfsvorkunn þar sem enginn á að bera ábyrgð á sjálfum sér.


mbl.is Skipta nú út nagladekkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýr í kollinum ?

Nú á að fela sig á bak við að lögin séu ekki skýr sem sjálfsagt eitthvað er til í. En tilgangurinn var alveg skýr þó hann missi algjörlega marks þar sem fyrirtækin hefðu hvort eð er þurft að halda ráðningarsambandi við flesta launamenn sína meðan þetta svokallaða úrræði er í gildi. Talandi um skýrleika þá þurfa þeir sem smíða og samþykkja lögin að vera skýrir í kollinum og það eru þeir augljóslega ekki. Þetta nýtir "Láki bak við hurð" hja SA sér og maður sér í viðtölum við hann um þetta efni hvernig hlakkar í honum yfir einfaldleika þeirra. Við skulum hafa í huga að á meðan mikið er í umræðunni að hafa jafnt að báðum kynjum á þinginu þá er lítið verið að velta því fyrir sér að hjörðin þar er orðin býsna einsleit vegna fjölda með lögfræðigráðu. Væri ekki nær að gæta upp á að þeir sem þar sitja séu með fjölbreytta reynslu alls staðar að - og ekki bara með gráður á sitjandann? 


mbl.is Óskýrleika laganna eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. apríl 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 130899

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 105
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband