Glæpafyrirtæki.

Þetta fyrirtæki heldur enn skrá yfir þá sem fóru í gjaldþrot í kjölfar efnahagshrunsins 2008  sem bankarnir áttu stóran þátt í. Einstaklingar sem hafa komist á lappirnar aftur og klárað tveggja ára fyrningartíma eru enn skráðir þarna og upplýsingum miðlað til bankanna sem sparka viðstöðulaust í liggjandi fórnarlömb sín. Þá er hægt að koma fólki á vanskilaskrá vegna tilhæfulausra krafna. Stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í að banna þetta apparat og fangelsa hundana sem þar stjórna. Hvar er nú Persónuvernd?


mbl.is Segja kröfu ASÍ og NS óskiljanlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað viltu láta standa á reikningnum ?

Það rifjast upp fyrir mér í sambandi við þessar falsanir Landsvirkjunar þegar ég var að hefja viðskipti við fyrirtæki í Kína fyrir tæpum 30 árum síðan en þá var ég spurður að því þar hvað ég vildi láta standa á reikningunum. Ég var nú svo grænn að ég bað um að þar kæmi bara fram nákvæmlega það sem viðskiptin voru um. Ekki veit ég hvort þetta er ennþá viðtekin venja þarna. Hins vegar veit ég að hægt er að fá vottorð fyrir hverju sem er í fyrrum Austantjaldslöndunum jafnvel þó það sé fjarri raunveruleikanum, hér hefur líka orðið vart við vottaða smiði og múrara þó hvorki kunni þeir að halda á hamri né múrskeið hvað þá að þeir hafi hugmynd um hvað hallamál er. Nú hafa skriffinnarnir í Brussel innleitt þetta Austantjaldsfölsunarkerfi í sitt regluverk og Landsvirkjun nýtur góðs af með að selja fölsuð upprunavottorð. Er prófgráða forstjórans kannski af sama meiði ?


mbl.is Óviss framtíð álversins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. apríl 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 14
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 130899

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 105
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband