29.9.2021 | 10:28
Snjöll heimska.
Hér á að höfða til heimsku viðskiptavinanna. Láta kúnnann sjá algjörlega um að afgreiða sig sjálfur og gefa búðinni þar að auki prókúru á bankareikninginn gegnum greiðslukortið. Það þykir orðið fínt að vera með símann fastgróinn í hendinni og sumir fara sjálfsagt ekki í sturtu án hans, svona nýmóðins töffaragangur. Sjálfsafgreiðslan sjálf er nú nógu vitlaus fyrir þar sem kúnninn er kominn í vinnu hjá búðinni án þess að fá nokkra umbun fyrir slíkt fyrir utan vandræðin sem skapast á sjálfsafgreiðslukössunum. Ekki dettur mér í hug að reyna frekari afgreiðslu þar og mun í framtímtíðinni aðeins fara á kassa þar sem er starfsmaður af holdi og blóði og svo mikið eitur er þetta í beinum mínum að ég hef hugsað mér að færa mig alfarið yfir í reiðufé aftur. Það er verið að skipta út ódýrasta fólkinu. Hvað ætli Frú Snjallbeitt og Hr. Snjallbeittur á myndinni séu á margföldum kassastarfsmannslaunum?
Sjálfsafgreiðslan er snjöll framtíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 160
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.