13.4.2020 | 11:30
Ríkissjóður á sterum ?
Aldrei man ég eftir að Ríkissjóður væri svo útþaninn að springa af fjármunum að önnur eins pissukeppni hafi farið af stað á Alþingi. Hefur Hrungeir á Svörtuloftum við að prenta?
![]() |
Leggur til tíföld listamannalaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.4.2020 | 11:04
Lífið er saltfiskur.
Þessi frasi var hávær á mínum yngri árum og vísaði í að við Íslendingar lifðum á að nýta það sem hafið í kringum landið gaf. Í raun hefur ekkert breyst í þeim efnum annað en að auðlindinni var stolið af þjóðinni og sett undir fáa útvalda. Hinir útvöldu létu sér ekki nægja að fá auðlindina frítt. Til að komast hjá því að leyfa þjóðinni að njóta arðseminnar að einhverju leyti notuðu þeir aðferðir sem þekktar eru hjá stórfyrirtækjum úti í heimi en þau kaupa aðföng af sjálfum sér og selja sjálfum sér afurðirnar. Þá er alþekkt að móðurfyrirtækin láni framleiðslufyrirtækjum sínum á vaxtastigi sem miðast við að ekki verði neinn hagnaður þar sem framleiðslan fer fram. Flest alvöru útgerðar- og fiskvinnslufeyrirtæki eiga skúffufyrirtæki erlendis sem kaupa afurðirnar héðan á verðum sem engum öðrum býðst. Þau selja svo áfram á markaðsverðum og íslenska þjóðin er hlunnfarin um skatttekjur af hagnaðinum. Nú þurfa pólitíkusarnir sem viljandi hafa verið sofandi yfir þessu að gyrða sig í brók og einbeita sér að því að þessi viðskipti fari fram með eðlilegum hætti þannig að réttmætar tekjur skili sér til samfélagsins. Það er löngu orðið tímabært að hætta því pilsfaldadekri sem viðgengist hefur gagnvart ferðþjónustufyrirtækjum í landinu. Það hefur aldrei mátt nefna það einu orði að láta erlenda ferðamenn greiða fyrir eitt eða neitt nema það detti beint í vasa ferðaþjónustufyrirtækja sem sum hver hafa ekki gert annað en að gráta sig í svefn, jafnt í góðæri sem harðæri. Mörg þeirra hafa aldrei verið rekstrarhæf nema fyrir það að þau fá að reka sig án þess að skila eðlilegum hluta til samfélagsins. Lífið er saltfiskur, var saltfiskur og verður saltfiskur hvað sem hver segir.
![]() |
Þúsundum verður lokað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2020 | 11:31
Hefur það ekki alltaf verið hægt?
Hef lagt inn númer á ferðabíl og borgað bifreiðagjöld í samræmi við tímann sem hann er á númerum. Hvað er þá nýtt?
![]() |
Tímabundin afskráning ökutækja heimil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.4.2020 | 10:35
Kindagötur.
Við úthlutun í embætti forstjóra Vegagerðarinnar var horft fram hjá því að viðkomandi þyrfti að hafa menntun og reynslu af gerð umferðarmannvirkja og vera þinnig hæfur sem veghaldari. Þess í stað var hin hefðbundna íslenska leið valin að láta klíkuskapinn taka yfir hæfnisgildin þó vitleysisgángurinn gæti ekki verið augljósari. Því lét dýralæknirinn í Samgönguráðuneytinu samverkamann sinn skipa dýralækninn í starfið sem nú gegnir því. En sennilega hefur ástæðan verið að fyrirhugað sé að ráðast að miklum krafti í gerð kindagatna í landinu, eitthvað sem rollurnar sáu alfarið sjálfar um áður fyrr.
![]() |
Handsalaður á tímum veirunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2020 | 10:45
Réttur maður á réttum stað.
Heima er best. Og þaorsteinn á miklu betur heima í þessu umhverfi en fuglabjarginu á Austurvelli.
![]() |
Þorsteinn tekur við Hornsteini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2020 | 09:19
Uppsagnarfrestur ?
Launamenn á almennum vinnumarkaði eru flestir með 3ja mánaða uppsagnarfrest og almenna reglan er að vinna hann og fá borguð laun til síðasta starfsdags. Hvernig geta alþingismenn hegðað sér svona? Allt í einu fá þeir bara hugljómun um að þeir nenni þessu ekki lengur. Þá standa þeir bara upp og segja: "Hættur, búið, bless" og labba út, og hirða þar að auki jafnvel eitthvað sem kallst biðlaun. Ég man eftir að Þórunn Sveinbjörnsdóttir gerði slíkt hið sama og hirti þá sex mánaða biðlaun án þess að vera að bíða eftir nokkru þar sem hún settist í framhaldinu á skólabekk. Guðni Ágústsson gerði slíkt hið sama og skellti sér á Klörubar en ekki beið hann heldur eftir neinu nema kannski flugvélinni sem flutti hann til Kanarí. Hér er m.a. einn hlutur sem samræma þarf við almennan vinnumarkað. Það er samt aðdáunarvert hve maðurinn hefur enst í hlutverki Samspillingahækju lengi, fjögur ár.
![]() |
Þorsteinn Víglundsson hættir á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2020 | 11:44
Glæpafyrirtæki.
Þetta fyrirtæki heldur enn skrá yfir þá sem fóru í gjaldþrot í kjölfar efnahagshrunsins 2008 sem bankarnir áttu stóran þátt í. Einstaklingar sem hafa komist á lappirnar aftur og klárað tveggja ára fyrningartíma eru enn skráðir þarna og upplýsingum miðlað til bankanna sem sparka viðstöðulaust í liggjandi fórnarlömb sín. Þá er hægt að koma fólki á vanskilaskrá vegna tilhæfulausra krafna. Stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í að banna þetta apparat og fangelsa hundana sem þar stjórna. Hvar er nú Persónuvernd?
![]() |
Segja kröfu ASÍ og NS óskiljanlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
7.4.2020 | 10:06
Hvað viltu láta standa á reikningnum ?
Það rifjast upp fyrir mér í sambandi við þessar falsanir Landsvirkjunar þegar ég var að hefja viðskipti við fyrirtæki í Kína fyrir tæpum 30 árum síðan en þá var ég spurður að því þar hvað ég vildi láta standa á reikningunum. Ég var nú svo grænn að ég bað um að þar kæmi bara fram nákvæmlega það sem viðskiptin voru um. Ekki veit ég hvort þetta er ennþá viðtekin venja þarna. Hins vegar veit ég að hægt er að fá vottorð fyrir hverju sem er í fyrrum Austantjaldslöndunum jafnvel þó það sé fjarri raunveruleikanum, hér hefur líka orðið vart við vottaða smiði og múrara þó hvorki kunni þeir að halda á hamri né múrskeið hvað þá að þeir hafi hugmynd um hvað hallamál er. Nú hafa skriffinnarnir í Brussel innleitt þetta Austantjaldsfölsunarkerfi í sitt regluverk og Landsvirkjun nýtur góðs af með að selja fölsuð upprunavottorð. Er prófgráða forstjórans kannski af sama meiði ?
![]() |
Óviss framtíð álversins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2020 | 23:50
Bannað að spyrja og biðja um skýringar.
Það virðst vera algjörlega bannað að koma með spurningar eða biðja um skýringar á þeirri útfærslu sem yfirvöld eru að fara varðandi þennan faraldur. Án þess að ég telji mig sérfræðing í söttvörnum þá átta ég mig ekki á hvers vegna einhverjum toppi á að vera náð um páskana og þetta eigi svo að vera yfirstaðiðí í júlí með þessari aðferð. Þeir sem gagnrýna þá sem spyrja svona heimskulega eins og ég benda réttilega á að ég sé ekki með menntun á þessu sviði. Ég vil hins vegar benda á að stjórnvöld sjálf hafa oft á tíðum skautað fram hjá því að ráða í störf hjá ríkisfyrirtækjum fölk með tilliti til menntunar þeirra. Þegar veghaldari var ráðinn í stól forstjóra vegagerðarinnar fyrir nokkru lét dýralæknirinn í Samgönguráðuneytinu samverkamann sinn skipa dýralækni í þá stöðu. Kannski var það vegna þess að ráðast á í stórfelldar framkvæmdir við kindagötur á næstunni. Ekki hefur þessi aðili mikla menntun á sviði vegagerðar eða gerð umferðarmannvirkja. Við skulum vona að Frosti sem hefur verið ataður auri fyrir gagnrýni sína hafi rangt fyrir sér en kannski væri líka rétt að bíða með að úthúða honum þar til við sjáum hvernig sú tilraunastarfsemi yfirvalda sem nú er í gangi heppnast.
![]() |
Ég vil að þetta sé rætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2020 | 00:04
Hjarðhúnn.
Sá sem lætur teyma sig á eyrunum með hjörðinni til slátrunar
![]() |
Björtu hliðarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 15
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 130900
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 106
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar